Fuglar í Björnslundi
Hrafn   hrafn

Lengd: 64 cm

Hrafninn er eini innlendi fulltrúi ættar sinnar og stærsti spörfugl landsins. Hann þarnast varla lýsingar enda öllum kunnur. Sitt sýnist hverjum og er hrafninn bæði elskaður og hataður. Á síðari árum hafa hrafnar í auknum mæli lært að nýta sér fóðurgjafir og sjást nú oftar í görðum en áður.
Þjóðsagan segir að ,,guð launi fyrir hrafninn" enda hefur frá fornri tíð tíðkast til sveita að fóðra bæjarhrafna. Það hafa væntanlega verið nálægir varpfuglar sem sótt hafa heim sveitabæi því oft er talað um að ein hrafnshjón fylgi hverjum bæ. Ýmsar sögur eru til um hvernig bæjarhrafnar hafa bjargað lífi velgjörðarmanna sinna með því að vara þá við hættum.

Skógarþröstur  

Lengd: 21 cm

Skógarþröstur hefur áberandi ljós brúnarák, dökkar rákir á bringu og rauðbrúnar síður. Á sumrin heldur parið saman og karlinn ver óðalið. Skógarþröstur verpir 2 - 3 sinnum á sumri og gerir sér nýtt hreiður fyrir hvert varp. Á haustin fer hann um í stórum hópum, nærist mest á reyniberjum í görðum til að fita sig fyrir farflugið og flestir hverfa þeir til vetrarstöðva á Bretlandseyjum. Nokkur þúsund fuglar verða eftir og halda sig að mestu í þéttbýli yfir veturinn þar sem þeir sækja í fóðurgjafir.

Auðnutittlingur  

Lengd: 13 cm

Lítil og rákótt finka. Grábrún með rauðan blett á enni og svarta kverk. Lifir að mestu á birkifræi en kemur í æti í garða og tekur fræ úr hangandi finkufóðrara eða af fóðurbretti. Hefur breiðst út í kjölfar aukinnar skógræktar. Auðnutittlingur er staðfugl.

Fuglafóðrun  
Fuglaskoðun
Fóðurkransar
   
Fuglavefurinn  
   
   
Til baUFFForsíðakaU