Uppskriftir

Gormabrauð bökuð yfir eldi

50 gr pressuger
6 dl volgt vatn
2 tsk salt
ca. 1 kg hveiti
Viðarteinungar til að baka brauðin á

Hrærið gerið saman við volgt vatnið og bætið hveiti og salti smátt og smátt saman við. Hnoðið deigið þangað til það er
slétt og þétt. Látið deigið lyfta sér í 3/4 klst. Hnoðið deigið aftur og skiptið því í mátulega hluta í gormabrauð. Mótið hvern skammt í sívalning og vefjið hverjum sívalningi utan um 25 - 35 cm langan viðargrein og þrýstið deiginu vel að greininni. Bakið gormaabrauðið ekki of nálægt glóðinni og snúið því oft. Brauðið er bakað þegar hægt er með góðu móti að taka það af viðargreininni, ca. 25 mín.

   

Lummur

1/2 kg hveiti eða hveiti og haframjöl
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk hjartarsalt
100 gr sykur
75 gr rúsínur (má sleppa)
1 egg sem þeytt er út í mjólkina
3/4- 1 l mjólk
feiti til að maka murikkapönnuna

Hjartarsalti, lyftidufti og sykrinum er blandað saman við hveitið. Vætt í með mjólkinni og hrært vel. Síðast er rúsínunum blandað saman við ef vill. Látið með skeið á heita og fituga pönnu. Lummurnar bakaðar móbrúnar á báðum hliðum. Látnar á disk og sykri stráð á.

 

Steinabrauð
Steinabrauð eru smábrauð sem eru bökuð beint á steini sem hefur verið fyrirfram hitaður

8 dl hveiti
6 dl grahamsmjöl

50 gr gær eða 3 tsk lyfti
duft (ef það er kalt)
2 tsk salt
smá olía
ca. 1/2 l volgt vatn
ef vill handfylli af hökkuðu grænu úr skóginum - t.d. hundasúrur, fíflablöð
.

Komið vatninu fyrir í skál og hrærið gerinu í vatnið og setjið salt og olíu út í vatnið. Hrærið hveitinu smátt og smátt út í. Að síðustu hnoðar þú deigið. Breiðið klæði yfir og látið bíða á volgum stað í hálftíma.

 

Jurtasmjör

Rjómi (1/2 lítri gefur ca. 250 gr af smjöri)
Niðursuðuglas
Heslihneta eða tréperla
Salt
Fínthakkaðar jurtir úr skóginum t.d hundasúrur o.fl
Hnífur og bretti

Setjið rjómann í niðursuðuglasið ekki þó meira en 1/3 hluta. Látið hnetuna eða tréperluna í glasið. Hristið þangað til að rjóminn er orðinn að smjöri. Þetta getur tekið u.þ.b. 15 mín. Þegar smjörið er tilbúið skal hella áfununum frá. Bragðbætið smjörið með salti og hökkuðum jurtum úr skóginum.

 

jurtasmjor
Til baka