| |
 |
Skýli
Gott er að geta leitað skjóls. Þarna er hægt að sitja af sér rigningu, snjókomu eða hlýða á fyrirmæli frá kennara um viðfangsefni dagsins o.s.frv.
En til að hægt sé að byggja hin ýmsu tæki og tól ásamt nytjahlutum, er nauðsynlegt að kunna trygga hnúta til að halda hlutunum í skefjum.
Fleiri hnútar;
|
Hringekja |
Tréróla |
Unnið að viðhaldi |
|
| |
|
Jafnvægisþraut
Tré úr skóginum eru bundin saman með köðlum og eru í raun stór róla, þar sem nemendur þjálfa jafnvægi.
|
| |
Kóngulóarvefur
Kaðlar strengdir á milli trjáa. Markmiðið með þessari þraut er að efla samvinnu nemenda. Einn einstaklingur er valinn og á að koma honum á milli reipanna og það án þess að snerta böndin.
Aðeins einn einstaklingur má fara inn í hvert op.
|
| |
Eldstæðið
Einn vinsælasti staðurinn í Björnslundi er eldstæðið. Ekkert er yndislegra eftir verkefnisvinnu en að fá sér heitt kakó og jafnvel eitthvað í gogginn.
Mikilvægt er að kenna nemendum að umgangast bálið. Þarna er hlýtt og notalegt.
Þarna er tilvalið tækifæri að tala um opinn eld og jafnvel tala um sinubruna og hvernig þeir geti skaðað dýralíf og umhverfi.
|
| |
|
| |
| Borðið okkar er dálítið frá-brugðið borðinu á uppruna-legu teikningunni. Við höfum tvö langborð og sætin eru gerð úr drumbum. |
|