Útileikir
Jafnvægiskaðlar
Hér þarf að halda jafnvægi og þreifa sér eftir línunum með því að halda í kaðlana fyrir ofan.
Þetta er ótrúlega mikil kúnst! Maður er bara ánægður að komast til enda!
Bílaleikur
Nemendum er skipt í jafna hópa tveir og tveir saman A og B hóp. A hópurinn á að standa í hring og standa gleiður (það er að standa með fætur í sundur) í hring og þeir tákna bílskúr, en hinn hópurinn er á fjórum fótum í klofinu og eiga að tákna bílinn. Vetlingapari eða einhverju öðru er komið fyrir í miðjum hringnum og er síðan talið, viðbúin, tilbúin og nú. Þá hendist bíllinn aftur á bak út úr bílskúrnum og börnin taka á rás hringinn, allir í sömu átt (það er einstefna) og reyna að komast sem fyrst í gegnum sinn bílskúr til að hremma vettling eða vettlingana sem er fyrir miðjum hringnum.

Fram fram fylking
Gaman er að brjóta upp leiki með því að fara í gamla sígilda söngleiki. Til er fullt af skemmtilegum söngleikjum s.s:
Bimm, bamm, bimm, bamm, bimmbirimmbi bimm, bamm
Mærin fer í dansinn o.fl. sígildir söngvaleikir.

Sjá bók Ragnheiðar Gestsdóttur í Grænni lautu: MM (2003)

Ýmsir hringleikir s.s:
Hlaupa í skarðið, köttur og mús o.fl.

 
 
jafnvaegi
bilaleikur
framframfylking
 
Til baka